CollegeHumor |
Bandaríska vefsetrið CollegeHumor, sem er einn vinsælasti skemmtivefur heims, opnar nýjan farsímavef sem byggður er á íslenskri tækni.
Farsímavefurinn er byggður á lausn íslenska sprotafyrirtækisins Mobilitus og er sá fyrsti í röð nokkura vefja í eigu Interactive Corp, móðurfélags CollegeHumor, sem byggðir verða á tækni Mobilitus.
Á vefnum er að finna skemmtiefni ýmis konar, myndir, greinar og myndskeið - en allt efni er sótt og umbreytt sjálfkrafa í símvænt form.
Íslenskir símnotendur fá forskot á sæluna, þar sem Síminn hefur fallist á að aðstoða Mobilitus við lokaprófanir með því að veita viðskiptavinum sínum aðgang að síðunni frá M-inu (m.siminn.is)
Smelltu hér til að taka forskot á sæluna og prófaðu nýjan vef CollegeHumor.